þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Ennþá með lífsmarki

Sæl verið þið.

Héðan er allt gott að frétta - mikið búið að vera að gera upp á síðkastið þannig að bloggið situr á hakanum á hakanum á hakanum. Jólin löngu búin og sumarið aðeins farið að hallast að haustinu - sem bíður átekta (vonandi sem lengst).
Þó að það hafi ringt í gær er búið að vera frekar sólríkt og heitt sumar - stundum aðeins of heitt fyrir mig þó að rollurnar hafi notið þess (sjá mynd). Var alveg himin glaður um daginn þegar ég labbaði heim í sunnan roki og rigningu - hélt að það myndi seint gerast.
Fór í síðustu mælingarferðina í janúar - tókum niður myndavél sem hafði verið sett upp til að ná myndum af snjóalögum - kom skemmtilega á óvart að hún hafði loksins hrokkið í gang og virkað frá síðustu vitjun.
Fór líka í veiðiferð með Ingó og Bergi fyrir rúmri viku síðan. Við náðum tveimur Kanada gæsum á leiðinni á veiðisvæðið og svo náði Bergur að skjóta eitt dádýr, þrátt fyrir að kíkirinn á byssunni hans hafi verið rammskakkur - enda hitti hann það í þriðja skoti þegar hann sleppti loksins að miða í gegnum kíkinn.
Reyndar dauðsá hann eftir því að skjóta það - því strax eftir veiðidansinn rann það upp fyrir honum að hann þyrfti að drösla því niður í gegnum skóginn. Sem betur fer gat hann beðið Ingó að hjálpa sér þar sem þeir höfðu talstöðvasamband sín á milli. Ég slapp alveg við að hjálpa þeim því ég var á svæði töluvert í burtu - og sá ekkert dýr eins og venjulega, en naut þess hins vegar að labba upp á nokkra fjallstoppa í um 1800 metra hæð.
Síðasta helgi var undirlögð undir Coast to Coast, þar sem skötuhjúin Hilmar og Svava í Lyttelton (sjá myndina til vinstri) voru að keppa. Ég var, ásamt Mikka, Eggerti (bróður Hilmars) og Kristni (pabba Svövu), í hjálparsveit þeirra - passa upp á að hjólin, kæjakarnir o.þ.h. væri tilbúið í skiptingunum. Þetta er gríðarlega vinsæl keppni hérna með tæplega þúsund keppendum.
Erum svo að fara í gögnuferði um næstu helgi, eða frá fimmtudegi til mánudags, sem kallast Milford Track. Þar rignir mest allt árið - en vonandi fáum við einhverja þurra daga...
Ekki meira í bili,
kveðja frá nz.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blessuð og sæl, ég heiti Elva og varí Pilates hjá Karólínu, eins og þú nefnir hana. Sendi ykkur póst í síðustu viku, en veit ekki hvort það hefur tekist sem skildi. Les stundum bloggið ykkar og sé að þú ert að fara í gönguferð, ef til vill verða sonur minn og tengdadótttir með í þeirri ferð, en
þau heita Steingrímur og Svanhildur.
Kærar kveðjur og gangi ykkur vel.
Elva Ólafsdóttir

Nafnlaus sagði...

Komid tid blessud. Erum stödd i Köben .Og komum å slodir myndavelar, sem var tynd.Hvar haldid tid ad hun hafi verid.
Kvedja Inga og Hreinn

Unknown sagði...

Thank you for the email Elva. I miss the girls from your group in pilates in Iceland. I have not met another group of crazy fun girls like you and the others since.
It was wonderful to meet your son Steini and Svanhildur. He was the best hiker of the group!
And very kind and personable. I wish you could have come too. You would have loved the beauty of the Milford Track. The weather was so wonderful and the company was so 'gaman' I will send an email soon with pics and stories.
BIG hugs and Love from New Zealand.
Love,
Carolyn