sunnudagur, október 07, 2007

All Blacks úr leik á HM í rúbbí!

Frakkar voru rétt í þessu að slá nýsjálendinga út á heimsmeistaramótinu í rúbbí. Þetta er náttúrulega algjörlega óásættanlegt. Nýsjálendingar eru yfirleitt númer 1 á lista yfir bestu þjóðir í rúbbíi - en þeir hafa bara einu sinni orðið heimsmeistarar - og það fyrir 40 árum.
Reyndar voru ástralir líka slegnir út af englendingum - þannig að það er smá huggun fólgin í því, að því gefnu að englendingar tapi næsta leik.
Nú býst ég við að Suður-Afríka fari létt með að vinna þetta mót...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vona að þið jafnið ykkur fljótt á þessu ... bara skandall að detta út... ert þú ekkert á leiðinni að fara að æfa rúbbí???
Engin gáta á leiðinni:)
kv Sigga