
Sæl verið þið.
Héðan er allt gott að frétta - mikið búið að vera að gera upp á síðkastið þannig að bloggið situr á hakanum á hakanum á hakanum. Jólin löngu búin og sumarið aðeins farið að hallast að haustinu - sem bíður átekta (vonandi sem lengst).
Þó að það hafi ringt í gær er búið að vera frekar sólríkt og heitt sumar - stundum aðeins of heitt fyrir mig þó að rollurnar hafi notið þess (sjá mynd). Var alveg himin glaður um daginn þegar ég labbaði heim í sunnan roki og rigningu - hélt að það myndi seint gerast.
Fór í síðustu mælingarferðina í janúar - tókum niður myndavél sem hafði verið sett upp til að ná myndum af snjóalögum - kom skemmtilega á óvart að hún hafði loksins hrokkið í gang og virkað frá síðustu vitjun.
Fór líka í veiðiferð með Ingó og Bergi fyrir rúmri viku síðan. Við náðum tveimur Kanada gæsum á leiðinni á veiðisvæðið og svo náði Bergur að skjóta eitt dádýr, þrátt fyrir að kíkirinn á byssunni hans hafi verið rammskakkur - enda hitti hann það í þriðja skoti þegar hann sleppti loksins að miða í gegnum kíkinn.
Reyndar dauðsá hann eftir því að skjóta það - því strax eftir veiðidansinn rann það upp fyrir honum að hann þyrfti að drösla því niður í gegnum skóginn. Sem betur fer gat hann beðið Ingó að hjálpa sér þar sem þeir höfðu talstöðvasamband sín á milli. Ég slapp alveg við að hjálpa þeim því ég var á svæði töluvert í burtu - og sá ekkert dýr eins og venjulega, en naut þess hins vegar að labba upp á nokkra fjallstoppa í um 1800 metra hæð.

Síðasta helgi var undirlögð undir
Coast to Coast, þar sem skötuhjúin Hilmar og Svava í Lyttelton (sjá myndina til vinstri) voru að keppa. Ég var, ásamt Mikka, Eggerti (bróður Hilmars) og Kristni (pabba Svövu), í hjálparsveit þeirra - passa upp á að hjólin, kæjakarnir o.þ.h. væri tilbúið í skiptingunum. Þetta er gríðarlega vinsæl keppni hérna með tæplega þúsund keppendum.
Erum svo að fara í gögnuferði um næstu helgi, eða frá fimmtudegi til mánudags, sem kallast
Milford Track. Þar rignir mest allt árið - en vonandi fáum við einhverja þurra daga...
Ekki meira í bili,
kveðja frá nz.