tag:blogger.com,1999:blog-71204874600210190802024-03-07T17:39:33.327+13:00Velkomin á vefskruddu Karólínu & EinarsSkrá yfir daglegt amstur Karólínu og Einars -- eða það sem þau láta eftir sér liggja opinberlega!Unknownnoreply@blogger.comBlogger54125tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-76595059118830281092009-01-01T10:25:00.002+13:002009-01-01T10:28:45.157+13:00Gleðilegt nýtt ár!Óskum öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári...Kveðja frá Nýja SjálandiUnknownnoreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-31019177500628231752008-09-20T18:35:00.003+12:002008-09-20T23:10:31.355+12:00Gáta númer 15 -- riddle number 15Faðir úthlutaði sex krónum jafnt til barna sinna til að hafa með sér á ströndina. Þegar tvö systkinabörn slógust óvænt í hópinn var þeim einnig gefinn hluti af sex krónunum þannig að hver krakki fékk jafn mikið. Við það minnkaði upphaflegi hlutur systkinanna um fjórðung úr krónu. Hvað voru krakkarnir margir?Lausnin á banana-gátunniLengd bananans í tommum er L = M/2, þar sem M er vigt bananans í Unknownnoreply@blogger.com7tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-89006230608317679972008-08-06T22:30:00.003+12:002008-08-08T11:11:49.095+12:00Gáta númer 14 -- riddle number 14Reipi hangir á girðingu með jafn langa enda sitt hvoru megin. Reipið vegur einn þriðja af pundi per fet. Á öðrum endanum hangir api, sem heldur á banana, og á hinum endanum hangir vigt, sem vegur það sama og apinn. Bananinn vegur tvær únsur per tommu. Reipið er jafn langt (í fetum) og aldur apans (í árum), og vigt apans (í únsum) er jöfn og aldur móður apans. Sameiginlegur aldur apans og móður Unknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-15880428203137317192008-07-31T20:00:00.004+12:002008-07-31T20:21:57.393+12:00Skólinn búinnEftir maraþon viku og hálfa þá tókst að skila mastersritgerðinni á réttum tíma. Var síðustu 30 tímana í stanslausri vinnulotu og náði að skila á síðasta klukkutímanum áður en skrifstofan lokaði. Hefði ekki verið hægt að semja betra tímaplan.Annars er allt gott að frétta, smá gola í dag og hálfgerð flæsutíð undanfarið. Núna er hávetur og snjórinn í fjöllunum er með mesta móti hef ég heyrt, þannig Unknownnoreply@blogger.com7tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-49600002230734032602008-06-09T00:02:00.007+12:002008-08-07T14:35:46.450+12:00Gáta númer 13 -- riddle number 13Hverjum er svo lýst:"Hann tók konungdóm eftir föður sinn. Þá var hann tíu vetra gamall. Hann var allra manna mestur og sterkastur og fríðastur sýnum, vitur maður og skörungur mikill. Guttormur móðurbróðir hans gerðist forstjóri fyrir hirðinni og fyrir öllum landráðum. Hann var hertogi fyrir liðinu."Lausnin á vísna-gátunniBóndasonur borinn var --> Einar (ég var borinn bóndasonur)Buxur var til Unknownnoreply@blogger.com6tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-39542261442371305722008-06-08T23:09:00.002+12:002008-06-08T23:56:00.252+12:00Vetur konungurSælt veri fólkið,hér er núna hávetur. Sá í fyrsta skipti snjó hér í borginni þegar ég fór í grillveislu hérna vestan megin í borginni (fjær sjónum). Já, það er alveg hægt að grilla þó að það sé snjókoma. Þetta var reyndar varla nokkuð sem hægt var að tala um - nokkrir sentímetrar sem staldra sjálfsagt ekki lengi við. En hérna þar sem við búum hef ég ekki séð snjó - enda búum við fimm hundruð Unknownnoreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-40030035542435096722008-04-27T12:17:00.001+12:002008-04-27T12:35:10.240+12:00Gáta númer 12 -- riddle number 12Þessi gáta kemur frá Hreini...Bóndasonur borinn var.Buxur vart til skifta.Flestar konur fráskildar.Fjölda ekki takmarkar.Sama orðið ráðning hverrar línu.Lausnin á þrasta-gátunniTvisvar sinnum fjórir eru átta þannig að tvisvar fjórir og tuggugu eru tuttugu og átta. Það voru því tuttugu og átta svartþrestir sem sátu úti í rigningunni. Einn sjöundi hlutinn var skotinn, þ.e. fjórir (því tuttugu og Unknownnoreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-34838607647481342802008-04-04T22:17:00.002+13:002008-04-04T22:42:31.195+13:00Eyglýst eftir skrefaraAuglýsi eftir skrifara í tímabundið starf - þarf að geta hafið ströf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað.Helstu verkefni:Skrifa mastersritgerðina mína.Laun:EnginStarfstími:Frá og með deginum í dag til júlíloka.Mikið er lagt upp úr góðum starfsanda. Ekki láta gott tækifæri fara forgörðum - sæktu strax um!Unknownnoreply@blogger.com7tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-48775310452083937332008-02-19T21:08:00.003+13:002008-02-19T21:18:55.765+13:00Milford TrackFengum besta hugsanlega veður á gönguleiðinni eftir Milford Track um síðustu helgi eins og sést á myndinni hérna til hliðar. Hægt er að skoða fleiri myndir hérna.Kveðja frá Aotearoa (Aotearoa þýðir Nýja Sjáland á máli frumbyggja).PS. Minni á gátuna hérna fyrir neðan...Unknownnoreply@blogger.com6tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-73019713776846502372008-02-12T20:46:00.000+13:002008-02-12T22:04:21.966+13:00Gáta númer 11 -- riddle number 11Tvisvar fjórir og tuttugu svartþrestir,sátu í rigningunni kreptir:Ég skaut og drap einn sjöunda hlutann.Hve margir urðu eftir?Twice four and twenty blackbirds,were sitting in the rain:I shot and killed a seventh part.How many did remain?Lausnin á rósa-gátunniÞar sem y er heiltala og y < 2, þá er y = 1. Þar sem 100 aurar á x rósir var fyrra verðið (því y = 1) og tilboð kaupmannsins er 200 aurarUnknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-85627473208478929602008-02-12T19:34:00.000+13:002008-02-12T20:42:04.106+13:00Ennþá með lífsmarkiSæl verið þið.Héðan er allt gott að frétta - mikið búið að vera að gera upp á síðkastið þannig að bloggið situr á hakanum á hakanum á hakanum. Jólin löngu búin og sumarið aðeins farið að hallast að haustinu - sem bíður átekta (vonandi sem lengst).Þó að það hafi ringt í gær er búið að vera frekar sólríkt og heitt sumar - stundum aðeins of heitt fyrir mig þó að rollurnar hafi notið þess (sjá mynd).Unknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-86802393992224148612007-12-23T21:59:00.000+13:002007-12-23T22:23:45.431+13:00Jólin komin -- sweeet-aasÞá eru önnur jóin okkar að renna í garð hér niðri undir. Jólaundirbúningurinn hefur ekki verið ýkja umfangsmikill - eins og venjulega er beðið með allt fram á síðustu stundu. Fólk hér á Nýja-Sjálandi heldur ekki upp á aðfangadag og er það því venjulegur vinnudagur hér í landi. Þeir taka því ekki út jólin fyrr en á jóladag - og eru grillveislur, að mér skilst, ekki óalgengar í sólskini og Unknownnoreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-51061767693054974552007-11-29T21:23:00.000+13:002007-12-01T23:06:53.396+13:00Gáta númer 10 -- riddle number 10Drós kemur inn í blómabúð og kaupir x rósir fyrir y krónur (x og y eru heiltölur). Þegar hún er að fara út úr búðinni segir blómasalinn, "Ef þú kaupir tíu rósir í viðbót sel ég þér allar rósirnar á 2 krónur, og þú munt spara 80 aura fyrir hverja tylft af rósum". Finnið x og y.A girl entered a store and bought x flowers for y dollars (x and y are integers). When she was about to leave, the clerk Unknownnoreply@blogger.com9tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-3962953841650744952007-11-12T19:09:00.000+13:002007-11-13T00:45:57.103+13:00FeltiFór í smá mælingartúr síðasta föstudag - keyrðum reyndar niður eftir á fimmtudeginum og mældum á föstudeginum. Samskonar túr og um daginn nema hvað í þetta skipti vorum við aðeins sex (í stað 30 síðast). Ég kem til með að nota þessar mælingar í mastersverkefninu og var mæld snjódýpt og eðlismassi. Einnig var komið fyrir myndavél sem mun taka sex myndir á sólarhring, til að fylgjast með Unknownnoreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-9555822040382194532007-10-23T12:33:00.000+13:002007-10-23T12:55:34.583+13:00ÞorrablótÞorrablót var haldið um síðustu helgi hjá honum Mikael - og var held ég nokkuð vel sótt af íslendingum sem búa hérna í Christchurch. Nokkrar myndir er hægt að skoða hér af blótinu. Boðið var upp á hangikjöt, harðfisk, svið, hrútspunga, skötu, hákarl, kleinur, pönnukökur og kindakæfu svo eitthvað sé nefnt - og að sjálfsögðu íslenskt brennivín. Á efri myndinni er blótshaldarinn sjálfur, Mikael en Unknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-60017220221866313462007-10-13T10:34:00.000+13:002007-10-13T14:23:20.129+13:00Gáta númer 9 -- riddle number 9Nákvæmlega tveimur milljónum punkta er komið fyrir innan hrings með 1 tommu radius. Er til bein lína sem skiptir punktunum til helminga, með nákvæmlega eina milljón sitt hvoru megin? Ef svo er, útskýrið hvernig það er hægt?An array of two million points is completely enclosed by a circle having a diameter of 1 inch. Does there exist a straight line having exactly one million of these points on Unknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-6504064533339826732007-10-07T12:23:00.000+13:002007-10-07T12:27:55.727+13:00All Blacks úr leik á HM í rúbbí!Frakkar voru rétt í þessu að slá nýsjálendinga út á heimsmeistaramótinu í rúbbí. Þetta er náttúrulega algjörlega óásættanlegt. Nýsjálendingar eru yfirleitt númer 1 á lista yfir bestu þjóðir í rúbbíi - en þeir hafa bara einu sinni orðið heimsmeistarar - og það fyrir 40 árum.Reyndar voru ástralir líka slegnir út af englendingum - þannig að það er smá huggun fólgin í því, að því gefnu að Unknownnoreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-78370703395794157662007-10-02T10:30:00.001+13:002007-10-02T11:45:15.019+13:00Carolyn þrjátíu vetraNú er Carolyn orðin þrítug (frá 24. september) og hélt hún mjög vel heppnað afmælispartí hérna um síðustu helgi. Þar voru allir uppáklæddir sem fígúrur úr Hollywood bíómyndum. Þar mætti meðal annarra Clint Eastwood, Gimli, sjóræningjar, Zorro og Zeta og meira að segja sjálfur Drakúla greifi auk margra annarra.Allir virtust skemmta sér vel og má örugglega sjá umfjöllun um þetta Hollywood partí í Unknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-39788341502047733902007-10-02T10:14:00.000+13:002007-10-02T11:05:53.016+13:00MastersverkefniÞá er ég búinn að senda inn þessa formlegu umsókn um mastersverkefni - þar sem ég þarf að gera grein fyrir verkefninu og hvað ég ætla að gera og hvernig ég ætla að gera það. En það á nú örugglega allt eftir að breytast mikið þegar ég fer af stað. Átti að skila því 1. október og ég skilaði því 1. október klukkan 22:15 (þannig að ég var a.m.k. á réttum degi!).Mælingarferðin sem ég fór í um daginn Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-67694388827341599102007-09-06T16:46:00.000+12:002007-09-10T13:09:38.084+12:00Gáta númer 8 -- riddle number 8Ef að 7 er dregið frá vissri tölu og útkoman svo margfölduð með 7, fæst sama útkoma og ef 11 hefði verið dregið frá tölunni og útkoman svo margfölduð með 11. Finnið töluna.If a certain number is reduced by 7 and the remainder is multiplied by 7, the result is the same as when the number is reduced by 11 and the remainder is multiplied by 11. Find the number.Lausnin á partý-gátunniEf gert er ráð Unknownnoreply@blogger.com9tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-34061665756625890882007-08-30T10:28:00.000+12:002007-08-30T10:49:17.535+12:00Sumarið farið að láta að sér kveðaÞá er kominn tími á nýtt blogg - þó að það sé ekki mikið að frétta. Jú, reyndar voru Nýsjálendingar að vinna gull í kúluvarpi kvenna á Heimsmeistaramótinu í Osaka í Japan - þar kastaði Valerie Vili kúlunni 20.54 metra. Þar sló hún persónulegt met í síðasta kastinu og vann með 6 cm mun.Og svo er heimstmeistaramótið í rúbbí að fara í gang eftir nokkra daga í Frakklandi. Á síðasta móti unnu Unknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-38948339121210109632007-08-16T16:54:00.000+12:002007-09-10T13:09:38.084+12:00Gáta númer 7 -- riddle number 7Ég tek áskorun Ómars Sharif um næstu gátu.Hver er lágmarksfjöldi fólks í partýi svo að það séu meiri en helmingslíkur á að einhverjir tveir eigi afmæli sama dag?What is the least number of people in a party so the probability that any two have the same birthday exceeds half?Lausnin á próf-gátunniEkki kom fram rétt lausn á þessari þraut þó að menn hafi verið heitir.En ef gert er ráð fyrir því að Unknownnoreply@blogger.com14tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-74173956298697263142007-08-16T16:25:00.000+12:002007-08-16T19:52:12.222+12:00Innskráningu í skólann loksins lokiðJæja, þá er ég loksins búinn að skrá mig í skólann - ætti alveg skilið að fá einhverjar einingar fyrir það - þetta er svo skrítið ferli. Þarf að hlaupa á milli skrifstofa með yfirlýsingar og ljósrit í þríriti lon og don. En nú er þetta loksins komið í höfn.Mjög líklega kominn með mastersverkefni líka - það fjallar um snjóalög í Jollie dalnum (sem er norðan við Pukaki-vatn). Var reyndar búinn að Unknownnoreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-57121243896969053462007-07-02T17:29:00.001+12:002007-09-10T13:09:38.084+12:00Gáta númer 6 -- riddle number 6Svona í tilefni af því að ég var að klára prófin!Sex nemendur eru að taka próf og sitja í sömu sætaröðinni með útgönguleið við sitthvorn enda raðarinnar. Ef þeir klára prófið í handahófskenndri röð, hvaða líkur eru þá á því að nemandi verði að fara fram hjá einum eða fleiri nemanda til að komast út úr röðinni?Suppose six students be standing an examination in a row of seats with an aisle at each Unknownnoreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-7120487460021019080.post-13121793628698380562007-07-02T16:03:00.000+12:002007-07-02T21:41:33.676+12:00KaikouraFórum í tveggja daga ferð norður til Kaikoura um síðustu helgi og gistum þar eina nótt. Þetta er mjög fallegur staður og gott að koma þangað að vetri til þegar ekki er mikið um ferðamenn. Þarna er töluvert af sellátrum á ströndinni og að sjálfsögðu eru rollur og kýr þarna líka - eins og alls staðar annars staðar á Nýja Sjálandi.Hægt er að skoða fleiri myndir úr ferðinni á vefmyndasíðunni. EinnigUnknownnoreply@blogger.com1